Leitarbox

Dagatal
febrúar - 2012
S M Þ M F F L
1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829
FyrriNæsti
23.01.2007 00:09:14 / svavabjork

Ísland.. !!

ÍSLAND !!

Bara svona minna mig á það hvað það er  æðislegt að  vera  íslendingur.. 


» 2 hafa sagt sína skoðun

17.01.2007 16:05:24 / svavabjork

sjiiitt

www.blog.entral.is/belles  

sjóóðandi heitt


» 0 hafa sagt sína skoðun

14.01.2007 16:02:05 / Anna F

Bleller strákar.. síminn er sko opinn !

Jæja hvað segja bændur ? Allavegana er Fannsý hress ;) GOSH

Í gær var alveg helvíti gaman.. svaf eignlega allann daginn og hafði það nice heima þangað til  að ég fór að vinna, það var svosem ágætt.

Síðan var haldið í Fagrahjalla 44 í svona ágætt matarboð :)Þar voru mættar Beglí,Sara,Sif,Begga,Heiðrún,Hrefna, Berglind Ýr,Tanja og auðvitað Svava kokkur.Selpurnar voru búnar að klára allt þegar að ég og Sif komum.. meira hvað þessar bollur geta étið ;) eftir gott spjall við matarborðið var haldið inn í stofu og var fengið sér smá sykur og safnað í sig kjarki til að fara að keppa við mig í singstar.. og ég rústaði þeim ööööllum .. GOSH..  ðal annars tók ég

  • Love Machine Beglí tótally að syngja það vitlaust hahah
  • Personal Jesus
  • Stacy´s mom
  • Stop

og möörg fleiri.. GOSH

Svo létu Anna Þóra og Aldís gellur sjá sig og voru þær hressar að vana og voru auðvitað að fara á djammið ;) Fengum við að heyra skemmtilegar vinnu sögur :) ekki leiðinlgt það. Ég og Beglí ( sem er uppáhalds shotgun manneskja í HEIMI + sundpartner og stæ partner ) fórum með gellurnar niður í bæ á strippið. Anna Þóra orðin líka svona hress ;) Svava varð ekki ein eftir enda fékk hún heita gæja í heimskón að nafni Arnar P***** og Gunni eyrnatappi.

mig langaði bara að deila með ykkur einu ljóði í endann sem að ég hef lengi verið með í huganum .. ég segi nu bara Torfi Töff hvað ?

Ég heiti Fannsý og er geðveikt heit

á böllunum er ég alltaf í strákaleit

Ég vil hafa þá ölgjör yndi

En fýla alls ekki gaura með græn bindi

ég og Beglí besta ;)
flott bindi..

» 16 hafa sagt sína skoðun

09.01.2007 14:54:07 / svavabjork

"er mamma þín eða pabbi heima?" "umm tjaa eiginlega ekki sko"

Það er kominn 9. janúar.. og ég er að hanga heima að reyna að finna stofu til að komast á samning á.. en það er nú meira en að segja það.. þetta er þvíííílíkt bras.. og enþá meira bras því  að fimleikarnir taka smá tíma af mér, og sumt fólk hugsar bara um rassgatið á sjálfum sér og vill ekki leyfa mér að fara klukkutíma fyrr á mánudögum hálftíma fyrr á föstudögum, svo ég geti fengið að sinna smá hreyfingu með náminu !! og svo  eru það laugardagarnir, ekki má ég heldur sleppa þeim, og btw þá má ekki skylda okkur til að vinna á laugardögum !!!!!!!!!!!!! Ég er að missa vitið hérna útaf þessu..  af hverju þarf þetta að vera svona mikið mál ?!?!?!  þetta væri mun einfaldara ef sumt fólk færi aaaaðeins að hugsa um aðeins meira í kringum sig heldur en bara sjálfan sig !!! nglsgkwrn.hw !!

og svona til að gleðja mig aðeins, þá eru aðeins 17 dagar í að við fimleikarnir förum til DK.. ooo mig hlakkar svo til... þrátt fyrir að þetta verði stutt stopp þá verður þetta vonandi gaman !!

Hugurinn er svooo tómur að ég get ekki hugsað meira þannig ég ætla bara að fara aðborða og svona..

SVAVAVAVAVAVA BJÖRK!!!


» 7 hafa sagt sína skoðun

02.01.2007 04:32:51 / svavabjork

2006 gert léttilega upp !

Okeei. 2006 búið og hefur 2007 tekið  við.

 

Hvað gerði ég yfir árið ?

 

Janúar: þá vorum við meðal annars soldið í því að baka á nóttunni,  fórum í minnisstætt matarboð til Söru og Sifjar, og  fórum saman 4 í ógleymanlega bústaðarferð

Hressar í matarboðinu

 

Febrúar: hann var nú heldur rólegur minnir mig.. lítið um stórviðburði. Ætli Nemó ballið hafi ekki staðið uppúr í febrúarmánuði.

Skvísur á nemó

 

Mars: í mars gerði ég ekki neitt.

 

Apríl: ég fór til Kanaríeyja í 2 vikur í apríl, og var það aaaalveg frábært. Æðislegt veður fyrir utan fyrstu 2 dagana,  maður náði að slappa svona líka helvíti vel af í sólinni, versla, wörka tanið, og nóta þessa að vera á frábæru 5* lúxus hóteli. Fórum svo mikið sem 11 saman og eyddum páskunum þarna saman

Við frænkurnar á Kanarí

 

Maí: Prófin byrjuðu, maður lærði eins og mófó og náði öllu með stæl.. Silvía Nótt skeit á sig í Eurovision, og við Anna Fanný og Tanja skelltum okkur á eitt lokaball og já  það  var hressleiki !! Svo byrjaði maður nú bara að vinna til að næla sér í  peninga, sem  var nú ekki há upphæð hjá mér. Fór einnig á Nínu og Geira showið á Broadway, sem var btw kliiikkað gaman.

ýkt gaman a Bjögga

Júní: Byrjaði júnímánuð á því að fara til Danmerkur í viku, var í  Köben í 3  daga og fór svo til bestu frænku í öllum heiminum til Horsens í 4 daga. Stutt stopp en allveg æðislegt. Svo var það nú bara vinna. 17 júní var jú ágætur bara. Heimsótti svo Tönju til Eyja eina helgi. Og vann meira.

Mæðgur í Danmörku

 

Júlí: Hann var heldur einmannalegur. Allan júlímánuð var ég alein heima ! Vann eins og svo margir aðrir og tók æðislega ökuskóla ! Einnig skelltum við okkur 4 uppí bústað að slappa af, fara í pottinn, hoppa á trampolíninu, ég og Tanja héldum létta tónleika og bruuunuðum á fjórhjólinu.

Ef þig vantar að koma á tónleika, þáhöldum við aðra tónleika í febrúar

 

Ágúst: Fór til Tönju í 10 daga.  Kom þangað í æðislegt  veður, naut þess í tætlur að vera ekki að vinna, lá á pallinum í sólbaði meðan Tanja var í vinnu og bara að hafa það gott, svo þegar það fór að nálgast þjóðhátíðina byrjaði veðrið að vesna. Þjóðhátíðin var æææðisleg, þrátt fyrir veðrið. Skulum ekkert samt tala mikið um þjóðhátíð því það er svo langt í næstu. Og svo auðvitað náði  ég að komast uppí 17 ára aldur.

á þjóðhátið ég fer fer fer,þar feikna gaman er

 

September: rólegur mánuður, skólinn fór á fullt, allir að jafna sig eftir sumarið og svona. Héldum líka óvænta afmælisveisu fyrir Fannzý .

Anna fanný fór á kostum í myndatöku í óvænta afmælinu.

 

Oktober: Ætli það hafi ekki verið slakasti mánuður ársins. Virkilega lítið gert. Eina sem ég man var að við fórum nokkur uppí bústað. Meira var ekki gert, bara þetta hefðbundna líf. FÉKK  EINNIG BÍLPRÓF ÞÁ !

 

Nóvember:  Svo kom nóvember. Þá  bjó ég mest megnis heima hjá ÖnnuFanný því það  voru miklar framkvæmdir í húsinu mínu og ekkert hægt að vera þar. Einnig skelltum við Anna Fanný okkur til Glasgow með fjölskyldunni minni í svona létta verslunarferð. Svo var Myrkramessan hjá Mk haldin, og maður lét sig ekki vanta, það var  held ég bestaskólaball sem ég hef farið á.

 Glasgowpíur

Desember: Skólin kláraðist og komst maður í langþráð jólafrí. Þar sem ekkert var gert nema þrætt Smáralindina og Kringluna til að finna allar þessar blessuðu jólagjafir. Sem ekki erí mikluuppáhaldi hjá mér. Svo  kom aðfangadagur, hann var æðislegur, fékk fullt fullt af æðislegum gjöfum og frábæran mat.  Svo hrundu inn jólaboðin  eins og gengur og gerist yfir jólin. Fórum svo nokkur saman á loka ball Svörtu fatanna á Nasa 30 des. Held það hafi verið eitt besta ball sem ég hef farið á.  Áramótin, já þau voru frábær. Anna Fanný og fjölskylda komu í mat til  okkar, sprendum  svo upp nokkrum þúsundum og lá svo leiðin eftir langa umhgsun á Broadway á Sálarball!

   
Aðfangadagur.                       Skvísur á lokaballi.          Gamárskvöld.

 

Jáá þannig var nú árið hjá mér svona í Grófum dráttum. Ég held ég hafi nú samt gert einhvað meira en þetta, sem annað hvort er ekkert varið í,  e-ð sem ég man ekki eða einfaldlega einhvað sem ég nenni ekki að segja frá..

 

Takk fyrir allt liðið og GLEEEÐILEGT NÝTT ÁR =)

Svava Björk

» 4 hafa sagt sína skoðun

24.12.2006 05:45:43 / svavabjork

krúsí

núna geta þrillarnir svarað 17  þegar það er spurt þau um aldur, en það gátu þau ekki í gær... þvíí þau eiga afmæli elskurnar..

Mig langaði bara svona fyrir hönd Potorros að óska þeim til hamingju með daginn ... Til hamingju með daginn krakkar mínir :*

svo á hann Jóhannes frændi einnig afmæli líka, hann er nú  samt töluvert eldri en þau 3 þarna fyrir ofan.. er ekki alveg með aldurinn á tæru...  eeen það skiptir ekki öllu
einnig vil ég óska ykkur öllum landsmönnum góðum GLEÐILEGRA JÓLA ... !!

» 7 hafa sagt sína skoðun

22.12.2006 02:15:31 / svavabjork

jæja krakkar mínir !

jæja krakkar

í gær fór ég til Sigga Tann. Og þannig er mál veð vexti að svona slæmu hef ég bara aldrei lent í á ævi minn takk fyrir.  Ég kom inn settist á biðstofuna og  beið eftir að það yrði kallað á mig,  jæja svo kallar hún á mig og ég fæ mér sæti og reyni að hugsa um einhvað fallegt, svo kemur Siggi lítur uppí kjaftinn á mér, fer léttilega yfir myndirnar sem hann tók af fallegu tönnunum mínum fyrir fáeinum dögum og sótti sprautuna.. jeij hann ætlaði að deyfa mig, já ekkert mál stakk sprautunni  inn og já ég dofnaði strax, hann gerir borinn til, byrjar að bora og þvílíkur sársauki, deyfingin virkaði ekki! nú þá var ekkert annað í stöðunni  en að stinga aftur, hann stakk,  og á svona þvílíkt vitlausan stað, beint í einhverja taug, þar af leiðandi fékk ég sting upp allt andlitið, tárin byrjuðu að leka hraðar og hraðar niður kinnina á mér, og ég hélt ég myndi láta lífið, roooosalegur sáááársauki, gooosh. harkaði þetta svo af mér, og hann boraði og setti  fyllingu, og svo var komið að því að setja járnið kringum tönnina og setja einhvað tæki á, eeen nei þar sem ég er með svo þéttar tennur, var hann ekki að koma því á milli, það sem hann reyndi, gékk ekkert, svo tók hann græjuna í sundur og hélt áfram að troða og troða án árangurs, svo eftir góðan troðning tókst þetta, hann lauk þessu svo loksins af og ég fékk að skola, þá flæddi blóð útum munninn, og ég hætti ekki að skirpa blóði,  meiri viðbjóðurinn...  svo leit ég í spegil, ég var eins og ég veit ekki hvað, ég var svo ljót að ég hefði getað leikið í hryllingsmynd !! mig langaði mest að fara heim og leggjast undir sæng þar sem enginn gæti séð mig, EEEN nei ég þurfti að fara í KRINGLUNA að hitta ömmu og afa til að finna mér jólagjöf..  ekki nóg með það að ég leit út eins og ófreskja þar sem ég var stokkbólgin í andlitunu, með dofið auga og slefnadi, þá gat ég ekki gengið því ég er tognuð eða einhvern fjanda í náranaum. mér leið hreint út sagt ömurlega! og það sem toppaði þetta er það að ég fékk ofnæmi  fyrir deyfingunni, jeij

nóg um það, og yfir í aðra sálma...  það var að rifjast upp fyrir mér, að þegar ég var ekki með bípróf, og  var að labba til stelpnanna, þá þurfti ég alltaf að labba upp  álfaheiðina  og alltaf þegar ég labbaði framhjá einum sérstökum ljósastaur þá slokknaði alltaf á honum, freeekar óþgæinlegt, svo fékk ég bílpróf og hef ekki labbað þarna síðan þannig ég hef ekkert kippt mér upp við þetta fyrr en núna, núna þegar ég er að keyra heim til min og þarf að keyra þarna einvhern Hjalla þá  keyri ég framhjá einum sérstökum ljósastaur og þá slokknar alltaf á honum ! hvaaaað er þaaað ??

jæja krakkar mínir, 2 dagar í jól og það segir mér eitt, Heiðrún á afmæli í dag. L O K S I N S varð hún 17 ára þessi elska, hlaut að koma að því.. ooog hún er þar af leiðandi komin með bílpróf því hún var svo dugleg að massa þetta  fyrir afmælið, annað en aaaallir hinir í vinahópnum,  bara á góðu tjilli og taka þetta nokkrum mánuðum seinna, það er líka ágætt... og það segir mér líka að það eru 2 dagar í að Sara, Sif og Guðjón eigi afmæli og þá verða þau líka looooksins 17 ára eeen fá ekki bílpróf strax, og það segir mér líka að eftir 2 daga verða þau 3 í Fréttablaðinu, eeekki oft sem þríburrar eiga afmæli í aðfangadag haa... ég þekki þau !

Svava, Anna Fanný og Heiðrún, þessi sem er líka orðin 17 ára...
Til hamingju með daginn krúsí :*
btw, ég setti skóinn útí glugga...  ætli sveinki komið við hjá mér í nótt ?
Svava Björk 

» 9 hafa sagt sína skoðun

18.12.2006 01:53:39 / Anna F

Jólaball :D

Jæja ég er buin að setja inn myndir frá jólaballi FÍV :D fékk lánaðar myndirnar inná flawless og svo setu Svava kannski inn sínar myndir :lol:

En er farin að sofa njótið :**


Tanja ROKK!

:D


» 0 hafa sagt sína skoðun

12.12.2006 16:52:20 / svavabjork

Guuummi kallinn

Hver man ekki eftir þessu !?!?

"þaaað má ekki pissa bakvið hurð!"


» 8 hafa sagt sína skoðun

09.12.2006 22:18:34 / Anna F

Anna Monika 17 ára :D

Langar að henda inn einu afmælisbloggi :D

Anna Monika er án efa ein lífsglaðasta manneskja sem ég þekki, hún er alltaf brosandi og í góðu skapi og alltaf til í að fíflast:D og er hún 17 ára skvísan í dag :D.Hún er í MK og er að brillera þar :D endalaust dugleg að læra, strákarnir slefa á eftir henni á göngonum en hun segist ekki taka eftir þvi 8).Hún er að æfa jazzballet og kann svo sannalega að dansa, tók þátt í leikritinu i MK og fór þar á kostum með danssporin :D

 

Til hamingju með afmælið sæta :**

Kv.Anna Fanný :lol:


» 2 hafa sagt sína skoðun

06.12.2006 22:44:15 / svavabjork

Er þetta satt ?!?!

bíddu bíddu.. ég var hérna að flétta yfir "gamlar" myndir og viiiiitiði hvað ég sá ??

já einmitt.. ég fann mynd þar sem ég, Svava Björk Gunnarsdóttir er í svörtum sokkum við gallabuxur..!! það gerist ekki  oft.. aðeins í neyð... ég trúi þessu ekki uppá mig..
já þetta er ótrúlegt...
Kv. Eiin í sjokki !

» 9 hafa sagt sína skoðun

23.11.2006 00:31:44 / potorros

Glaaaaaaaaaaaasgow !!

Dagur 1

 

Það sem allir hafa beðið eftir… Feeeerðasaga…

 

Sumir vöknuðu hressari en aðrir (Svava var hressari en Anna Fanný)  svo tókst Önnu Fanný nú að druslast á fætur..  Didda Dúlla og Gunni Rokk komu fyrir allar aldir og sóttu okkur uppá fjall og við brunuðum uppá flugvöll.. Tékkuðum okkur inn eins og vanalega og allt gékk eins og í sögu..  við gengum inn ganga upp tröppur og þvílíka króka til að komast inní blessuði fríhöfnina…allt svo breytt… hittum þar kunnulega félaga áttum þar létt spjall, spreðuðum nokkrum seðlum og gengum í hinn endann á byggingunni þvílíka stiga og rug log komum svo inní einhvað gler og þá erum við komin til baka aftur, hvað er verið að flækja þetta svona mikið í stað þess fyrir að hafa bara hurða á glerinu og labba þar í gegn, já maður spyr sig. Flugið var ið ágætasta fyrir utan þessa ææææðislegu konu sem sat ská fyrir aftan okkur og gerði ekki annað en að kvarta og röfla.. kræst þær gerast ekki verri.. var svo bitur úti ameríkufarþegana sem þurftu að ná tengiflugi og það var seinkun á fluginu frá Ameríku,  að saga class fólkið fékk að fara út á undan, að landgangurinn var ekki tilbúinn þegar við komum og að ég hafi verið að horfa á mynd í tölvunni minni.. og btw þá heyrði ég ekki stakt orð í myndinni því hún rööööööflaði svo MIIIIIIIKIÐ !!!! og hún bað við að lækka því hún heyrði svo mikið  en ég skil það ekki því heyrði ekki neitt… gooosh !! beygla..

Við lentum í Glasgow og á meðan við vorum að bíða eftir töskonum þá fer Gunni Babe að ná í peninga og Didda lika svo þegar þau koma til baka með þetta stóru og þykku peninga þá heyrist í snillingnum ”það er eins og þessi peningar séu úr pappír” allir horfa á hana og segja ahh Svava mín, nei elskan þeir eru ú plasti hvað helduru auðvitað eru þeir ú PAPPÍR ;).Svo um 11 fórum uppá Hótel hentum frá okkur töskunum og forum út að borða og að v e r s l a. Enduðum þennan dag svo á því að fara út að borða já ágætis mat á Hótelinu bara… þjónninn var æði, hlóum endaaalaust, hún var allveg eins og little britten svo fór Svava að segja okkur frá jólaljósonum á jólatréinu og hún segir “Maður verður bara geðveikur á að horfa á þessi ljós þau fara bara “tiiiiig tiiiig tiiiiig tiiiig tigtigtigtigtigtigtig ” og lýsti því í svo mikilli einlægni .. En svo tók svo svefninn öll völd..

 

Dagur 2

 

Næsta dag var vaknað fyrir allar aldri og farið í þennan fínasta morgunverð, eftir þennan flotar morgunverð fórum við að versla og versla og versla og versla og var þá keppni um hver myndi fá fyrst pokann í hendurnar og það vorum við sem náðum að vinna þann leik, þar sem við eyddum um 19klst inní í H&M og mikið var eytt peningum þennan dag.Einnig var eytt svona 45klst inní í HUGO BOSS þar sem Svava var að klæða  upp pabba sinn og mætti halda að hann væri svona 18 ára í dag enda ekki verra að eiga pabba sem lítur unglega út haha.Svo þegar við vorum ornar frekar svangar hringdum við í Gunna og þá var hann með Erlu og Andra að borða á einhverjum voða töff stað sem við gátum fengið okkur e-ð að borða.Við Svava pöntum okkur mat og þurfum að fara á barinn til að kaupa okkur sprite okei ekkert mál við förum að barnum og segjumst vilja fá 2 sprite okei ekkert mál  svo þegar við ætlum að fá að borga nei þá máttum við ekki kaupa okkur sprite því við erum ekki ornar 18 ára þannig Erla þurfti að koma og kaupa handa okkur að drekka.Svo þegar við vorum búnar að borða vel saddar og glaðar, þá drögum við Gunna með okkur í búðir til að splæsa á Svövu og það gekk nu bara frekar vel :D..Eftir langan dag þá hlaupum við uppá hótel til að taka okkur til fyrir þennan fína kvöldverð sem við vorum að fara að borða :D. Við gerum okkur fínar og sætar og komum niður i lobby þar sem allir bíða eftir okkur eins og vanalega, jæja við þurfum að labba svona 10 mín í veitingastaðinn og þegar við erum búin að labba í heilar 10 mín í rigningu og frekar vondu veðri þá heyrist í Svövu ”Pabbi það er ekkert 10 mín í þennan stað það er svona 30 mín” hún buin að missa sokkana niður og nýju stígvélin að nuddast við skinnið og hun er að fá hælssæri ekki mjög gaman...

 

Svo þegar við erum komin á staðinn frekar sjúskuð eftir þetta labb þá pöntum við matinn og fáum svo að drekka við fengum okkur sprite og minnsta gos í heimi var í þessu spritei þannig þá heyrist í svövu ”OJJJ þetta er goslaust pantaðu nytt pabbi ég get ekki drukkið þetta!!!”

 

Allir springa úr hlátri og Svava er frekar óhress með það en það líður hjá.Svo þegar við erum að panta aðalréttinn þá er ekki kjukklingur á matseðlinum og þá vill Svava bara fá kjukkling með piparsósu og auðvitað er það hægt bara að spurja haha :D en mamma hennar og pabbi voru ekki alveg sammála fyrst með að spurja bara um það en það gekk upp á endanum.Svo þegar við vorum búin að borða af okkur tennurnar þá hélt leið okkar downtown þar sem við fórum inná social  og fengum okkur a drekka og mikið var dansað við Gunna og Erlu sérstaklega og þá við ”Sexyback” og ”another one bites the dust ” frekar mikið stuð :D svo hélt leið okkar heim eftir langt labb, mikið af mansonistum að ásækja okkur, fullt fólk að dansa og heví góður matur og ekkert annað en frystiklefinn beið okkar.

8)">

 

Dagur 3

 

Við vorum vaktar um half 10 og þá kom Didda inn og sagði að við ættum að drífa okkur á fætur og fara niður að borða og þá sagði hún að þau væru búin að fara og fá sér morgunmat þá heyrist í svövu “HA !? eru þið búin að fá ykkur að borða ! Ojj hvað þið eruð leiðinleg” og þá hafði verið buið að reyna að vekja okkur i klukkutíma en ekki rumskuðum við.Svo fórum við niður og þar sat Gunni og beið eftir okkur og Svava settist hjá honum á meðan Anna Fanný fór og fékk sér morgunmat EIN því Svava vildi ekki fara, ÞRJÓSKA barn ! Svo hélt leið okkar í bæinn og þar var verslað og verslað og verslað fórum inní River Island og við héldum að þetta væri ein niggah búðin en NEI svo sannalega ekki þetta var bara geðveikt töff búð og mikið var verslað þar :D sérstaklega Svava.Svo var einn mallakútur orðinn frekar svangur þannig við ákváðum að kikja á Mc’donalds :D og þar var sko -9° og við borðuðum frosnar franskar með glertómatsósu.Eftir þennan æðislega mat þá hélt leið okkar í fleiri búðir og á heimleiðinni fengum við okkur starbucks kakó og ummmm það toppaði allan jólafýlingin í ferðinni ...Við  uppá hótel að klæða sig fyrir síðasta kvöldið.Við fengum að ráða hvort við vildum Fridays eða spænskan galadinner stað og við völdum Fridays.Við fórum inn og ætlðuðum að panta borð og þá var 1 og halfur tími bið og já Svava var sko meira en til í að bíða því hun var ekkert svöng en allir aðrir að deyja ! Þannig við biðum Frankenstein bar og þar var nú meira fjörið perrar hægri vinstri og enn og aftur var spilað ”Sexyback” og ”another one bites the dust ” alltaf saman tónlistin en það var bara fjör :D.Svo vorum við búin að bíða í klukkutíma þegar við fengum borð á Fridays og gátum loks pantað forrétt,aðalrétt og eftirrétt umm þetta var æðislega gott þannig það má segja að þetta var biðinnar virði.Svo fórum við bara uppá hótel að pakka ÖLLU draslinu okkar og Svava pakkaði svona 4 sinnum í töskuna því hun var með svo mikið dót :S en það tókst á endanum svo var bara farið að sofa.

 

 

Dagur 4

 

Þá vorum við vaktar half 8 og við þutum niður i morgunmat til að missa alls ekki af honum og til að fá ekki myglað brauð og súran djús.Eftir morgunmatinn þá fórum við að tjékka okkur út og að leita af leigubíl og alveg merkilegt með þessa skota þeir taka ekki fleiri en 3 í  hvern bíl þannig við þurftum að bíða eftir 2 bílum og gátum svo brunað útá flugvöll.Svava,Andri og Erla voru komin á undan hinum og biðu í röðinni, getiði hver birtist fyrri aftan?? Engin önnur en þessi skemmtilega kona sem sat ská fyrir aftan okkur á leiðinni út sem pikkaði í Svövu og var tuðandi allt flugið.Þá voru þær vinkonurnar mættar og byrjuðu að tuða.

Þessi gella byrjaði að setja útá töskurnar okkur pikkaði í vinkonu sína og sagði “Sérðu töskurnar” og hin alveg stein hissa “Já guð alltof mikill farangur”..

 

Svo ákvað vinkona okkar að fara að rotla og lét bara vinkonu sína bíða með töskonum. Svo þegar hun kom til baka þá byrjaði hún “ekki er fólk að kaupa sér raftæki hér, þetta er á sama verði og heima” þá kom hin “Jú ! fólk kaupir sér allt hér.” En það var samt miklu ódýrara að kaupa þarna úti en herna heima.Svo Hélt það bara endalaust áfram að tuða og tuða og setja upp “snobb”svipinn.Svo fórum við bara í gegnum fírhöfnina og komnar að gateinu okkar þá fann pabbi Svövu ekki passan sinn né flugmiðann og enginn vissi hvað hafði orðið um það.Þannig allir byrjuðu að leita í töskunni sinni nema Svava hun sagði bara “ég er ekkert með þetta ” og bara “Pabbi hann er svo kostulegur” og svo sagði Gunni bara leitiði betur stelpur þá ákvað svava að drattast til að kíkja og nei nei nei þá VAR ÞETTA ALLT Í TÖKSUNNI HENNAR ! og hún fór inná passanum sem stóð Gunnar Björnsson og flugmiðanum og pabbi hennar á Svava Björk Gunnarsdóttir MEIRA RUGLIÐ! Hahah.Svo flugum við heim og komum heim í óveður hefðum frekar viljað vera bara áfram í Glasgow en samt æðislegt að komast heim í sitt eigið rúm:D

 

 

En við kveðjm hér og takk æðislega fyrir okkur Gunni rokk og Didda dúlla:**

 

 

- Anna Fanný og Svava Björk :D

 
 

 

 


» 14 hafa sagt sína skoðun

16.11.2006 00:04:35 / svavabjork

FI430 Glasgow 07.45 07.45 On Time

þarna já bless.. við Anna Fanný erum farnar til glasgow..!!!

» 7 hafa sagt sína skoðun

09.11.2006 22:46:08 / svavabjork

þessi bjargaði deginum allgjörlega...

Stelpa spyr kærastann sinn um að koma heim til sín á föstudagskveldi og
borða með foreldrum sínum. Þar sem þetta er nokkuð stór viðburður, þá
tilkynnti stelpan kærastanum sínum að eftir matinn myndi hún vilja fara út
og hafa samfarir í fyrsta sinn.

Jæja, strákurinn er himinlifandi, en hann hafði aldrei áður haft samfarir,
svo hann gerir sér ferð til lyfjafræðings til að ná sér um nokkra smokka.
Hann segir lyfjafræðingnum að þetta sé hans fyrsta skipti og
lyfjafræðingurinn tekur sér klukkutíma í að fræða strákinn um allt sem hann
veit um smokka og samfarir.

Þegar kemur að því að panta, þá spyr lyfjafræðingurinn strákinn að því
hversu marga smokka hann myndi vilja kaupa: 3 í pakka, 10 í pakka eða
fjölskyldupakka. Strákurinn vildi gjarnan kaupa fjölskyldupakka því hann
taldi að hann yrði frekar upptekinn, þetta væri fyrsta skiptið hans,
o.s.frv.

Um kvöldið mætir strákurinn heima hjá foreldrum stelpunnar og kærastan
tekur á móti honum. ,,Vá, ég er svo spennt fyrir því að þú hittir foreldra mína,
komdu inn!".

Strákurinn gengur inn og er vísað til borðs þar sem foreldrar stelpunnar
eru sest niður. Strákurinn býðst skyndilega til að fara með borðbæn og hneigir
höfuðið.

Mínútu seinna er strákurinn enn við bæn með höfuðið hneigt niður.

10 mínútur líða og ennþá örlar ekki á hreyfingu frá stráknum.

Eftir 20 mínútur hallar stelpan sér að kærastanum sínum, sem enn virtist í
djúpri bæn, og hvíslar að honum ,,Ekki vissi ég að þú værir trúaður!"

Strákurinn snýr sér við og hvíslar til baka: ,  Ekki  vissi ég að pabbi
þinn væri lyfjafræðingur!!!"


» 6 hafa sagt sína skoðun

06.11.2006 15:05:37 / svavabjork

Grease is the word

loks hafa myndirnar af önnu fanný síðan við fórum með hana í náthólsvíkina á afmælisdaginn hennar í myndatöku komnar á síðuna... njótið vel... =)


» 5 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 16
Leitarbox

Anna flytur til svíþjóðar:)
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 1647 dögum